Aston Villa hefur sent fyrirspurn til Burnley vegna markvarðarins Tom Heaton.
Burnley er tilbúið að hlusta á tilboð í Heaton og Joe Hart en félagið ætlar að treysta á Nick Pope sem aðalmarkvörð á næsta tímabili.
Burnley er tilbúið að hlusta á tilboð í Heaton og Joe Hart en félagið ætlar að treysta á Nick Pope sem aðalmarkvörð á næsta tímabili.
Nýliðar Aston Villa eru í markmannsleit en félagið vildi fyrst fá Jack Butland frá Stoke. 25 milljóna punda verðmiði Stoke varð hins vegar til þess að Aston Villa hætti við þær áætlanir.
Auk Heaton er Aston Villa að skoða Alex McCarthy, markvörð Southampton.
Athugasemdir