Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 09. júlí 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Everton og fleiri félög vilja Delph
Líklega á förum frá Manchester City.
Líklega á förum frá Manchester City.
Mynd: Getty Images
Fabian Delph gæti verið á förum frá Manchster City samkvæmt frétt Sky Sports í dag.

Delph er 29 ára gamall miðjumaður en hann hefur spilað talsvert í bakverði hjá Manchester City.

Þessi 29 ára gamli leikmaður á ár eftir af samningi sínu við City en hann hefur fengið þau skilaboð að hann megi fara.

Manchester City hefur ekki ennþá fengið nein tilboð í Delph en nokkur félög hafa sýnt áhuga.

Þar á meðal er Everton en Delph og Gylfi Þór Sigurðsson gætu mögulega orðið liðsfélagar á komandi tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner