Breskir fjölmiðlar hafa undanfarna mánuði orðað Peter Crouch við Rangers.
Rangers vann í kvöld 0-4 sigur á St. Joseph's frá Gibraltar í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.
Steven Gerrard, stjóri Rangers, var spurður út í þessar sögusagnir eftir leikinn í kvöld.

„Það er eitthvað til í þessum orðrómum en þeir eru í grunninn rangir. Crouch er ekki að koma sem leikmaður til Rangers heldur til þess að taka mig í viðtal fyrir nýja þáttinn sinn."
Ekki er vitað að svo stöddu hvort að Crouch sé raunverulega á leið til Glasgow að taka viðtal við Gerrard eða ekki en þetta var ágætis leið hjá Gerrard til þess að svara þessum orðrómum.
Gerrard og Crouch léku saman hjá Liverpool og enska landsliðinu á sínum tíma.
Athugasemdir