Manchester United hefur spurst fyrir um Mario Lemina, miðjumann Southampton, en Sky Sports greinir frá.
Lemina hefur fengið leyfi frá Southampton til að ræða við önnur félög en hann er ekki með liðinu í æfingaferð þess í Austurríki.
Lemina hefur fengið leyfi frá Southampton til að ræða við önnur félög en hann er ekki með liðinu í æfingaferð þess í Austurríki.
Hinn 25 ára gamli Lemina er frá Gabon en hann hefur leikið 46 leiki síðan hann kom frá Juventus árið 2017.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, vill styrkja miðjuna en hann er líka sagður hafa áhuga á Sean Longstaff miðjumanni Newcastle.
Paul Pogba gæti verið á förum en hann hefur verið ítrekað orðaður við brottför frá Old Trafford undanfarnar vikur.
Athugasemdir