Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. júlí 2019 12:30
Magnús Már Einarsson
Shaqiri tæpur fyrir byrjun tímabilsins með Liverpool
Mynd: Getty Images
Óvíst er hvort Xherdan Shaqiri nái byrjun tímabils í ensku úrvalsdeildinni með Liverpool.

Shaqiri reif vöðva í kálfa í leik með Sviss í Þjóðadeildinni í síðasta mánuði og verður frá næstu vikurnar.

„Shaq er ennþá meiddur eftir landsleiki og það er einhver tími í að hann nái sér," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool í dag.

Undirbúningstímabilið er í fullum gangi hjá Liverpool en liðið mætir Norwich í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar föstudagskvöldið 9. ágúst.
Athugasemdir
banner
banner
banner