Fotbolti.net
09.07.20 - 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

England: Jafnt á Goodison - Hendi kom í veg fyrir sigurmark

Mark Bournemouth dæmt af eftir að hafa farið í hönd Joshua King í þessu atviki.

Mark Bournemouth dæmt af eftir að hafa farið í hönd Joshua King í þessu atviki.

Canon

Mynd: Getty Images

Tveimur leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni og einn leikur hefst klukkan 19:15 þegar Aston Villa tekur á móti Manchester United.

Bournemouth tók á móti Tottenham á sama tíma og Everton fékk Southampton í heimsókn. Við skellum okkur fyrst beint á Goodison Park þar sem Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði á bekknum hjá heimamönnum.

James Ward-Prowse fékk kjörið tækifæri til að koma gestunum yfir en vítaspyrna hans fór í þverslána. Það var Andre Gomes sem braut af sér og um tíu mínútum síðar fór hann af velli fyrir Gylfa.

Í millitíðinni skoraði Danny Ings eftir undirbúning Stuart Armstrong. Ings funheitur með liði Dýrlinganna. Brasilíumaðurinn Richarlison jafnaði leikinn á 44. mínútu eftir undirbúning Luca Digne og staðan var 1-1 í leikhléi.

Jordan Pickford sá við Che Adams strax í upphafi seinni hálfleiks og um stundarfjórðungi seinna var skoðað hvort að Jan Bednarek ætti að fá rautt spjald en gult spjald varð niðurstaðan. Fátt markvert gerðist eftir það og 1-1 niðurstaðan. Everton hefur ekki tapað í síðustu tíu leikjum sínum á heimavelli. Liverpool er eina liðið þessa stundina sem hefur spilað fleiri heimaleiki í röð án þess að tapa.

Þegar um tuttugu mínútur voru eftir að leik Bournemouth og Spurs lýsti Styrmir Sigurðsson leiknum á þennan hátt:



Það lifnaði aðeins yfir leiknum á Vitality leikvanginum undir lokin því Callum Wilson tókst að skora á lokamínútu venjulegs leiktíma. Markið var hins vegar dæmt af vegna hendi í aðdraganda marksins. Tólf mínútum var bætt við leikinn en ekkert varð úr því að sigurmark kom í leikinn. Tottenham er í 9. sæti deildarinnar og Bournemouth er í bullandi veseni í fallsæti.

Bournemouth 0 - 0 Tottenham

Everton 1 - 1 Southampton
0-0 James Ward-Prowse ('29 , Misnotað víti)
0-1 Danny Ings ('31 )
1-1 Richarlison ('44 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal38+4485
2Manchester City38+4278
3Manchester Utd38+1971
4Aston Villa38+765
5Liverpool38+1060
6Bournemouth38+457
7Sunderland38-654
8Brighton38+653
9Brentford38+353
10Chelsea38+652
11Fulham38-452
12Newcastle38-249
13Everton38-349
14Leeds38-747
15Crystal Palace38-1045
16Nott. Forest38-344
17Tottenham38-941
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.