Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 09. ágúst 2018 22:30
Magnús Már Einarsson
Coutinho fær treyju sjö hjá Barcelona - Gamla númer Eiðs
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho hefur fengið treyju númer sjö hjá Barcelona fyrir komandi tímabil.

Coutinho fékk treyju númer 14 þegar hann kom frá Liverpool á 146 milljónir punda í janúar.

Arda Turan var síðast í treyju númer sjö hjá Barcelona en hann er í láni hjá İstanbul Basaksehir.

Coutinho hefur því fengið sjöuna en leikmenn eins og Eiður Smári Guðjohnsen, David Villa, Henrik Larsson og Luis Figo hafa áður leikið í henni hjá Barcelona.

Coutinho skoraði átta mörk í 18 leikjum í spænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner