Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 09. október 2018 13:30
Arnar Helgi Magnússon
Birkir Már: Næsti mánuður verður leiðinlegur í einstaklingsæfingum
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Már Sævarsson leikmaður Íslandsmeistara Vals er mættur til Frakklands í landsliðsverkefni. Íslenska liðið mætir því franska í æfingaleik á fimmtudagskvöldið.

„Menn eru alveg ákveðnir í því að sýna að þetta hafi bara verið vinnuslys í leiknum á móti sérstaklega Sviss, og í leiknum gegn Belgíu að einhverju leyti. Menn eru staðráðnir í að koma sterkir til baka."

„Fólk býst ekki við miklu af okkur í leiknum gegn Frakklandi og það er bara gott fyrir okkur, við náum vonandi að koma aftan að þeim. Þeir voru frábærir á HM og eru með mjög gott lið, við þurfum að vera á algjörum toppdegi ef við ætlum að ná í úrslit."

Birkir talar um að það hafi verið sérstakt að koma niðurdreginn úr landsleikjahléi í síðasta mánuði en það hefur svo sannarlega ekki verið venjan uppá síðkastið.

„Sem betur fer fékk ég smá velgengni heima. Það var frábært að lyfta Íslandsmeistaratitlinum, gerist ekki betra."

Birkir hefur æft einn síðan að tímabilið á Íslandi kláraðist.

„Það er auðvitað bara vika liðin en ég er búin að halda mér gangandi síðan þá. Það er kannski frekar næsti mánuður sem verður aðeins leiðinlegri í einstaklingsæfingum. "

Viðtalið við Birki má sjá í heild sinni hér að ofan.

Athugasemdir
banner
banner