Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 09. október 2018 18:00
Arnar Helgi Magnússon
Henderson: Chamberlain kemur beint inn í liðið
Mynd: Chamberlain
Alex Oxlade Chamberlain leikmaður Liverpool er núna á fullu í endurhæfingu eftir að hafa meiðst alvarlega gegn Roma í vor.

Átta dögum eftir leikinn gegn Roma gekkst hann undir aðgerð sem gekk vel en hann óskaði eftir að ekki yrði sagt frá hversu lengi hann yrði frá keppni á þeim tíma. Ástæða þess er sú að hann vildi ekki að staða sín myndi trufla framgöngu liðsins í Meistaradeildinni í vor.

Mjög tæpt verður að teljast að Chamberlain nái að spila áður en að þessu tímabili lýkur.

Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool hefur nú tjáð sig um Chamberlain og segir að endurhæfingunni miði vel.

„Ox kemur sterkari til baka. Þegar hann kemst í fyrra form þá kemur hann beint inn í liðið. Við krossum fingur á að endurhæfingin haldi áfram svona vel. Hann spilar stóra rullu í okkar leik þegar hann kemur til baka."

Hér til hliðar má sjá mynd sem Chamberlain póstaði á Instagramsíðu sína.
Athugasemdir
banner
banner
banner