Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 09. október 2019 17:00
Magnús Már Einarsson
Maguire: Dæmið mig eftir 5-6 ár
Mynd: Getty Images
Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, vill að fólk dæmi tíma hans hjá félaginu eftir 5-6 ár.

Maguire varð dýrasti varnarmaður sögunnar þegar United keypti hann á 80 millljónir punda í sumar. Byrjun United á tímabilinu hefur hins vegar verið erfið.

„Þetta er langtímavekefni og það er aðalatriðið. Dæmið mig eftir fimm ár - þá sést hvort ég hafi notið velgengni hjá félaginu eða ekki," sagði Maguire.

„Ég hef mikla trú á því að eftir fimm eða sex ár verði talað um að ég hafi notið velgegni og ég er viss um að ég mun eiga góða tíma hér."

„Við þurfum að halda áfram að bæta okkur sem lið, ekki bara ég sem einstaklingur. Ef við bætum okkur sem lið þá mun mér ganga vel líka."

Athugasemdir
banner
banner