Manchester United og Manchester City áttust við í grannaslag í kvennaboltanum á Englandi í hádeginu í dag.
Leiknum lauk með 2-2 jafntefli en þær bláklæddu léku lungan úr leiknum einum færri.
Á 35. mínútu fékk Georgia Stanway beint rautt spjald fyrir skelfilegt brot á Leah Galton.
Galton fékk boltann og þá kom Stanway á fullri ferð og fór með sólann beint í lærið á Galton. Stanway reyndi að mótmæla dómnum eins furðulega og það hljómar.
Þetta skelfilega brot má sjá hér fyrir neðan.
Stanway red card for endangering a player pic.twitter.com/zIqj791L3p
— Hedonist (@The_Hedonist_6) October 9, 2021
Athugasemdir