Fotbolti.net
09.10.22 - 19:56
Ívan Guðjón Baldursson

England: Rauðu djöflarnir börðust fyrir sigri gegn Everton

England: Rauðu djöflarnir börðust fyrir sigri gegn Everton
Canon

Mynd: EPA

Everton 1 - 2 Manchester United
1-0 Alex Iwobi ('5)
1-1 Antony ('15)
1-2 Cristiano Ronaldo ('44)

Manchester United heimsótti Everton í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og tók Alex Iwobi forystuna fyrir heimamenn með glæsilegu marki snemma leiks.

Rauðu djöflarnir vöknuðu strax til lífsins og svöruðu fyrir sig með marki. Kantmaðurinn knái Antony jafnaði eftir sendingu frá Anthony Martial sem þurfti svo að fara meiddur af velli.

Cristiano Ronaldo kom inn fyrir Martial og var búinn að skora stundarfjórðungi síðar, eftir frábæran undirbúning frá Casemiro. Casemiro, sem var að spila sinn fyrsta heila leik frá komunni til Man Utd, vann boltann á miðsvæðinu og gaf í sömu andrá frábæra sendingu sem rataði innfyrir vörn Everton.

Rauðu djöflarnir verðskulduðu forystuna eftir góðan fyrri hálfleik en heimamenn í Liverpool voru betri eftir leikhlé. Seinni hálfleikurinn var nokkuð bragðdaufur þar til á lokakaflanum þegar Marcus Rashford kom boltanum í netið en markið ekki dæmt gilt vegna hendi í aðdragandanum.

Everton-menn sóttu án afláts á lokamínútunum enn inn vildi boltinn ekki þrátt fyrir tilraunir. Jordan Pickford var kominn í vítateig Man Utd og næstum búinn að koma hausnum í boltann en það gekk ekki upp.

Niðurstaðan flottur sigur fyrir Man Utd sem er í fimmta sæti, með 15 stig eftir 8 umferðir. 

Everton er aftur á móti í tólfta sæti, með 10 stig eftir 9 umferðir.

England: Rauðu djöflarnir börðust fyrir sigri gegn Everton
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Chelsea6+210
6Leeds6+39
7Liverpool5+39
8Everton5+39
9Ipswich Town6-39
10Hull City5+28
11Newcastle508
12Man Utd606
13Nott. Forest5-15
14Aston Villa6-55
15Crystal Palace5-54
16Sunderland6-64
17Bournemouth6-63
18Tottenham6-63
19Coventry5-93
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.