Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 09. nóvember 2018 12:38
Elvar Geir Magnússon
Laugardal
Í beinni: Landsliðshópur opinberaður
Fréttamannafundur 13:15 í Laugardal
Icelandair
Erik Hamren landsliðsþjálfari.
Erik Hamren landsliðsþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 13:15 verður fréttamannafundur KSÍ í höfuðstöðvum sambandsins í Laugardal.

Erik Hamren og Freyr Alexandersson opinbera landsliðshóp fyrir komandi verkefni.

Fundurinn verður sýndur í beinni á heimasvæði okkar á Facebook og þá verður bein Twitter lýsing frá öllu því helsta sem gerist.

Ísland mætir Belgíu í Þjóðadeildinni í Brussel fimmtudaginn 15. nóvember og leikur svo vináttulandsleik gegn Katar, í Eupen í Belgíu, fjórum dögum síðar.

Ljóst er fyrir leikinn í Brussel að Ísland mun enda í neðsta sæti í sínum riðli í Þjóðadeildinni og falla úr A-deild keppninnar.

Hólmar Örn Eyjólfsson, Rúnar Már Sigurjónsson, Emil Hallfreðsson og Jón Daði Böðvarsson eru á meiðslalistanum og verða ekki með. Þá gefur Viðar Örn Kjartansson ekki kost á sér.

Búast má við því að Hamren velji stóran hóp fyrir þessa tvo leiki.



Athugasemdir
banner
banner