Romelu Lukaku, framherji Manchester United, byrjar að æfa á ný með liðinu í dag eftir meiðsli.
Lukaku hefur misst af síðustu tveimur leikjum Manchester United gegn Bournemouth og Juventus vegna meiðsla.
Lukaku hefur misst af síðustu tveimur leikjum Manchester United gegn Bournemouth og Juventus vegna meiðsla.
Jose Mourinho, stjóri United, staðfesti á fréttamannafundi rétt í þessu að Lukaku hefji æfingar að nýju í dag.
Ef Lukaku kemst heill í gegnum æfinguna í dag og á morgun verður hann með í grannaslagnum gegn Manchester City á sunnudag að sögn Mourinho.
Þessar fréttir þýða einnig að Lukaku verður væntanlega klár í slaginn þegar Belgar mæta Íslendingum í Þjóðadeildinni á fimmtudaginn.
Athugasemdir