Harry Maguire og James Maddison eru meiddir og missa af leik Leicester gegn Burnley á morgun, laugardag.
Þá verða þeir ekki með enska landsliðinu í komandi verkefnum gegn Bandaríkjunum og Króatíu.
Sjá einnig:
Enski landsliðshópurinn - Callum Wilson valinn
„Meiðslin hjá Maguire eru verri en hjá Maddison. Sjáum hvort þeir verði klárir strax eftir landsleikjahlé," segir Claude Puel, stjóri Leicester.

Leicester er í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en það verður tilfinningaþrungin stund þegar liðið mætir Burnley. Þetta verður fyrsti leikur Leicester á heimavelli eftir þyrluslysið sem kostaði fimm lífið.
Athugasemdir