Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, segist hafa fengið áhuga á tísku frá móður sinni í æsku.
Pogba hefur vakið athygli í gegnum tíðina fyrir skrautlegar hárgreiðslur og litríkan fatastíl.
Pogba hefur vakið athygli í gegnum tíðina fyrir skrautlegar hárgreiðslur og litríkan fatastíl.
„Mamma mín veit hvað tíska er," sagði Pogba í viðtali við Copa90.
„Hún hefur mikið notað liti svo ég sá þetta hjá mömmu minni og þetta er í fjölskyldunni. Tíska frá degi eitt."
Viðtalið í heild er hér að neðan en þar fer Pogba meðal annars yfir tónlist, dansspor, franska landsliðið og fleira.
Athugasemdir