Það er ýmislegt sem að stuðningsmenn ensku liðanna þurfa að leggja á sig til þess að fylgja sínu liði í útileiki. Oft fylgja löng og kostnaðarsöm ferðarlög.
Steve Horton er diggur stuðningsmaður Wolves en liðið mætir Newcastle á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Þegar Horton fór að skoða það hvernig hann ætlaði að koma sér til Newcastle sá hann að það væri ódýrara fyrir sig að kaupa flug með millilendingu á Benidorm heldur en að taka lest.
Hann flaug því til Benidorm í gærkvöldi þar sem að hann eyddi kvöldinu á skemmtistað ef marka má Twitter-reikning kappans.
Hann mun síðan fljúga í dag aftur til Bretlands þar sem að hann mun sjá sína menn mæta Wolves klukkan 16:00 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
En route to Newcastle via Benidorm courtesy of @Ryanair. Cheaper than the train. #coyw @Wolves @tim_spiers_Star @IrishWolvesFans pic.twitter.com/x25r9OYgDH
-- Steve Horton (@BillyTapit) December 7, 2018
Athugasemdir