Eins og greint var frá fyrir helgi gæti Heimir Hallgrímsson verið að taka við liði Al Arabi í Katar.
Heimir Hallgrímsson var áhorfandi á leik Al Arabi og Umm Salal í gær þar sem að Al Arabi hafði betur, 3-0.
Eftir leikinn situr liðið í sjötta sæti deildarinnar en tímabilið í Katar er nú í fullu gangi.
Heimir hætti sem þjálfari íslenska landsliðsins í sumar eftir sjö ár í starfi hjá KSÍ. Heimir hefur verið orðaður við nokkur störf síðan þá og nú gæti verið að hann sé að ganga frá samningum.
Hér að neðan má sjá Heimir Hallgrímsson í stúkunni á leiknum í gær.
Former Iceland manager Heimir Hallgrímsson watched the match between Al Arabi and Umm Salal from the stands in preparation for taking over the training of Al Arabi SC in the coming period. @alarabi_club @QSL pic.twitter.com/UU3MzUoSqz
— Alkass Digital (@alkassdigital) December 9, 2018
Athugasemdir