Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 09. desember 2018 14:37
Hafliði Breiðfjörð
Myndaveisla: Eiður kom beint úr flugi og Bjarni Ben tognaði
Það voru margar goðsagnir samankomnar í Egilshöll í morgun til að leika styrktarleik fyrir Tómas Inga Tómasson sem hefur glímt við veikindi í kjölfar mjaðmaraðgerða.

Eiður Smári Guðjohnsen mætti seint til leiks en hann kom beint í leikinn úr flugi frá New York, Bjarni Benediktsson tognaði þegar hann reyndi að hlaupa Hreim Örn Heimisson poppstjörnu uppi og Kristinn Jakobsson varð fyrstur til að nota VAR á Íslandi. Allir skemmtu sér konunglega.

Hér að neðan má sjá fjölda mynda úr Egilshöll. Þau sem komust ekki á leikinn en vilja styrkja verkefnið geta lagt inn á reikning 528-14-300 kt. 070669-4129. Frjáls framlög.
Athugasemdir
banner
banner