sun 09. desember 2018 22:06
Elvar Geir Magnússon
River Plate meistari eftir sturlaðan fótboltaleik
Juan Quintero skoraði sigurmarkið.
Juan Quintero skoraði sigurmarkið.
Mynd: Getty Images
River Plate 3 - 1 Boca Juniors (Samtals: 5-3)
0-1 Dario Benedetto ('44 )
1-1 Lucas Pratto ('68 )
2-1 Juan Quintero ('109 )
3-1 Gonzalo Martinez ('120 )
Rautt spjald: Wilmar Barrios, Boca Juniors ('92)

River Plate er sigurvegari Copa Libertadores, Meistaradeildar Suður-Ameríku, eftir að hafa lagt erkifjendur sína í Boca Juniors á Santiago Bernabeu leikvangnum í Madríd í kvöld.

Fyrri viðureign þessara argentínsku stórliða endaði með 2-2 jafntefli á heimavelli Boca en ráðist var á liðsrútu félagsins fyrir seinni leikinn sem átti að vera í síðasta mánuði. Leiknum var frestað og River missti heimaleikjaréttinn.

Darío Benedetto skoraði fyrsta mark leiksins í kvöld og kom Boca yfir þegar hann slapp einn í gegn. Lucas Pratto, fyrrum leikmaður Boca, jafnaði fyrir River og farið var í framlengingu.

Boca þurfti að leika framlenginguna manni færri eftir að Wilmar Barrios fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Kólumbíumaðurinn Juan Quintero, sem er á láni frá Porto, kom River yfir í framlengingunni með geggjuðu marki. Frábært skot í slá og inn! Boca lagði allt kapp í að ná fram jöfnunarmarki og markvörðurinn Esteban Andrada spilaði nánast sem aukamaður í sókninni á lokakaflanum.

Boca var nálægt því að jafna en stöngin kom í veg fyrir það og með skyndisókn náði River að innsigla sigurinn þegar Gonzalo Martinez skoraði í autt markið í blálokin. 3-1. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út þegar River Plate tryggði sér sigur í Copa Libertadores í fjórða sinn í sögunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner