Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 09. desember 2018 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Spánn í dag - Botnlið Huseca fær Real Madrid í heimsókn
Leikmenn Real Madrid fagna marki Lucas Vazquez í 2-0 sigri á Valencia þann 1. desember.
Leikmenn Real Madrid fagna marki Lucas Vazquez í 2-0 sigri á Valencia þann 1. desember.
Mynd: Getty Images
Það eru fjórir leikir á dagskrá spænsku úrvalsdeildarinnar í dag, flautað verður til leiks í fyrsta leiks dagsins klukkan 11:00.

Þá mætast Eibar og Levante, þessi lið eru í ágætri stöðu í deildinni og eru um miðja deild.

Klukkan 15:15 mætir botnlið Huesca, Real Madrid. Gestirnir frá Madrid náðu í þrjú stig um síðustu helgi þegar þeir sigruðu Valencia, það gekk hins vegar ekki jafn vel helgina þar á undan en þá töpuðu þeir fyrir Eibar 3-0.

Real Sociedad og Real Valladolid mætast klukkan 17:30. Lokaleikur dagsins er viðureign Real Betis og Rayo Vallecano en flautað verður til leiks klukkan 19:45.

Sunnudagur 9. desember
11:00 Eibar - Levante
15:15 Huesca - Real Madrid (Stöð 2 Sport 2)
17:30 Real Sociedad - Real Valladolid
19:45 Real Betis - Rayo Vallecano (Stöð 2 Sport 4)
Athugasemdir
banner
banner