Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 10. janúar 2019 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Austin í bann fyrir bendingu - Deeney ákærður
Mynd: Getty Images
Southampton sárvantar sóknarmann um þessar mundir eftir að Charlie Austin var dæmdur í tveggja leikja bann af aganefnd enska knattspyrnusambandsins.

Bannið fær Austin fyrir bendingu í tapleik gegn Manchester City í desember. Hann myndaði V merki með fingrunum og sneri handabakinu í stuðningsmenn Man City, sem er ekki ósvipað því að gefa einhverjum fingurinn.

Southampton er í vanda þar sem Danny Ings er að glíma við meiðsli og Manolo Gabbiadini er á leið frá félaginu.

Troy Deeney, sóknarmaður Watford, hefur þá verið ákærður fyrir ummæli sín um dómarann eftir 3-3 jafntefli gegn Bournemouth á miðvikudaginn í síðustu viku.

Óljóst er hvaða refsingu Deeney á yfir höfði sér en hann hefur frest til 15. janúar til að svara ákærunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner