Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 10. janúar 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Gabriel Jesus: Ég þarf að spila meira
Gabriel Jesus skoraði fjögur í gær
Gabriel Jesus skoraði fjögur í gær
Mynd: Getty Images
Gabriel Jesus, framherji Manchester City á Englandi, fer fram á að spila meira eftir 9-0 slátrunina gegn Burton í enska deildabikarnum í gær.

Jesus skoraði fjögur mörk í sigrinum í gær og í fyrsta sinn sem hann gerir slíkt á ferlinum.

Hann hefur þó ekki átt fast sæti hjá Englandsmeisturunum og fer fram á að fá meiri tíma á vellinum. Hann hefur spilað 26 leiki og nú skorað 12 mörk á tímabilinu.

„Ég hef aldrei skorað fjögur mörk í einum leik ´ferlinum og ég er mjög ánægður með þetta. Við spiluðum vel og með fullri virðingu fyrir Burton þá er það mikilvægt," sagði Jesus.

„Ég vil auðvitað spila meira og hjálpa liðinu og við fórum í þennan leik til að vinna hann. Ég er mjög svo ánægður með þetta því á síðasta ári skoraði ég ekki mikið og það er erfitt því ég er framherji og þarf að skora," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner