Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 10. janúar 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Juventus að lána Sturaro til Genoa
Stefano Sturaro leikur með Genoa út tímabilið
Stefano Sturaro leikur með Genoa út tímabilið
Mynd: Getty Images
Ítalski miðjumaðurinn Stefano Sturaro er á leið til Genoa á láni út tímabilið en hann leikur með Juventus.

Sturaro er 25 ára gamall miðjumaður en hann er uppalinn hjá Genoa.

Hann hefur leikið með Juventus síðustu ár en átti ekki öruggt sæti í hópnum fyrir tímabilið og var lánaður til Sporting í Portúgal.

Honum tókst ekki að spila fyrir liðið og var sendur heim í byrjun janúar en hann er á leið til Genoa þar sem hann verður á láni út tímabilið.

Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum og þarf hann að spila ákveðið marga leiki til þess að virkja klásúlu í samningnum sem neyðir Genoa til að kaupa hann.

Búist er við að gengið verði frá helstu smáatriðum á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner