Solskjær í stúkunni á leik Vals og Víkings árið 2016 þar sem hann fylgdist með Óttari. Hann fékk Óttar síðan til Molde.
Óttar Magnús Karlsson segir að það hafi komið skemmtilega á óvart þegar Ole Gunnar Solskjær, fyrrum þjálfari hans hjá Molde, var ráðinn stjóri Manchester United á dögunum.
„Þetta kom á óvart, ég verð að segja það. Það er geggjað fyrir hann að fá þetta tækifæri og ég er mjög ánægður fyrir hans hönd," sagði Óttar við Fótbolta.net.
Solskjær fékk Óttar til Molde frá Víkingi R. árið 2017 og Óttar ber honum vel söguna sem þjálfari.
„Hann stýrir hlutunum fyrir utan. Hann er með gott skipulag og hefur góða yfirsýn á hlutunum. Hann er algjör toppgaur og það er gott að tala við hann. Ég get bara sagt góða hluti um hann."
Sjá einnig:
Óttar Magnús: Langaði að vera áfram úti
Athugasemdir