Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 10. janúar 2019 13:22
Arnar Helgi Magnússon
Tveir leikmenn Man Utd snúa til baka úr láni
Joel Pereira
Joel Pereira
Mynd: Getty Images
Tveir leikmenn Manchester United hafa snúið aftur til félagsins eftir að hafa verið á láni hjá sitthvoru liðinu.

Þetta eru þeir Joel Pereira og Matty Willock.

Joel Pereira er markvörður fæddur árið 1996 en hann var á láni hjá Vitoria Setubal í Portúgal. Hann lék tíu leiki fyrir félagið. Peirera er fæddur í Sviss en hefur spilað með yngri landsliðum Portúgals.

Hann hefur strax verið orðaður við Reading sem leitar sér nú að markverði út leiktíðina.

Willock var á láni hjá St. Mirren en hann spilaði fjórtán leiki fyrir félagið. Hann er bróðir Joe Willock sem er á mála hjá Arsenal.

Willock hefur ekki enn leikið leik fyrir aðallið United en Pereira hefur spilað þrjá leiki.
Athugasemdir
banner
banner