Varnarjaxlinn Sigurður Arnar Magnússon er búinn að framlengja samning sinn við ÍBV næstu tvö árin, út tímabilið 2022.
Sigurður Arnar hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Vestmannaeyinga undanfarin þrjú ár og hefur þessi öflugi miðvörður spilað 65 leiki fyrir félagið.
Sigurður er fæddur 1999 og spilaði 17 leiki í Lengjudeildinni í fyrra, er ÍBV mistókst að komast aftur upp í efstu deild.
„Til hamingju með samninginn Siggi og áfram ÍBV!" segir á vefsíðu ÍBV.
Athugasemdir