Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 10. janúar 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Afríkukeppnin í dag - Mane mætir leikmanni Vestra
Kundai Benyu er í liði Simbabve
Kundai Benyu er í liði Simbabve
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
B- og C-riðlar Afríkukeppninnar hefjast í dag en Senegal mætir Simbabve klukkan 13:00 á meðan Marokkó og Gana eigast við í öflugum leik.

Kundai Benyu, leikmaður Vestra, er í hópnum hjá Simbabve sem mætir stjörnum prýddu liði Senegal. Sadio Mane, Kalidou Koulibaly, Ismaila Sarr og Edouard Mendy eru allir í hópnum.

Gínea spilar við Malaví í síðari leiknum og á sama tíma hefst C-riðillinn þar sem Marokkó spilar við Gana. Bæði lið eru með gríðarlega sterka leikmannahópa og verður fróðlegt að fylgjast með þeim leik.

Pierre-Emerick Aubameyang mætir ferskur í hópinn hjá Gabon en hann hefur ekkert spilað með Arsenal síðustu vikur eftir að Mikel Arteta tók hann úr hópnum.

B-riðill:
13:00 Senegal - Simbabve
16:00 Gínea - Malaví

C-riðill:
16:00 Marokkó - Gana
19:00 Kómoroeyjar - Gabon
Athugasemdir
banner
banner