Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 10. janúar 2022 13:00
Elvar Geir Magnússon
Arsenal reynir allt til að fá Vlahovic
Arsenal er til í að opna veskið rækilega fyrir Vlahovic.
Arsenal er til í að opna veskið rækilega fyrir Vlahovic.
Mynd: EPA
Arsenal er tilbúið að fara eins langt og hægt er til að krækja í Dusan Vlahovic frá Fiorentina í janúarglugganum. Mikel Arteta stjóri Arsenal hefur sagt að félagið sé opið fyrir því að gera stór kaup í þessum mánuði.

Vlahovic er 21 árs og hefur verið iðinn við markaskorun í Flórens.

Það er forgangsatriði að fá inn sóknarmann þar sem Alexandre Lacazette verður samningslaus í sumar og Pierre-Emerick Aubameyang er úti í kuldanum.

En Vlahovic er einn eftirsóttasti sóknarmaður Evrópuboltans og verið orðaður við fjölmörg félög, þar á meðal AC Milan, Juventus, Liverpool og Newcastle.

Það hefur verið margt jákvætt við spilamennsku Arsenal á tímabilinu en liðið féll hinsvegar úr leik í FA-bikarnum í gær þegar liðið tapaði gegn Nottingham Forest.


Athugasemdir
banner
banner
banner