Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 10. janúar 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Aston Villa fer á Old Trafford
Manchester United fær Aston Villa í heimsókn
Manchester United fær Aston Villa í heimsókn
Mynd: EPA
Manchester United og Aston Villa spila í síðasta leiknum í 3. umferð enska bikarsins í kvöld en leikurinn er á Old Trafford, heimavelli United.

Philippe Coutinho gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Villa en hann kom til félagsins á láni frá Barcelona á dögunum.

Það verður fróðlegt að sjá þá hvernig Ralf Rangnick stillir upp en leikmenn liðsins hafa verið gagnrýndir fyrir frammistöðuna undanfarið og gæti farið svo að Rangnick geri einhverjar breytingar á liðinu.

Sigurvegarinn úr þessari viðureign mætir Middlesbrough í næstu umferð.

Leikur dagsins:
19:55 Man Utd - Aston Villa
Athugasemdir
banner
banner
banner