Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 10. janúar 2022 22:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Konsa útataður í blóði eftir högg frá Shaw í teignum
Shaw sló til Konsa í teignum.
Shaw sló til Konsa í teignum.
Mynd: EPA
Man Utd lagði Aston Villa að velli í þeirri elstu og virtustu, ensku bikarkeppninni, í kvöld.

Scott McTominay kom Man Utd yfir snemma leiks og reyndi Villa að finna jöfnunarmarkið eftir það.

Villa-menn reyndu hvað þeir gátu til að jafna leikinn og undir lokin gerðu þeir sterkt tilkall til að fá vítaspyrnu þegar Ezri Konza lá blóðugur í teignum eftir að Luke Shaw sló til hans. Michael Oliver sá hins vegar ekki ástæðu til að benda á vítapunktinn.

Hægt er að sjá mynd af Konsa eftir höggið hér að neðan. Villa-fólk ekki sátt með þetta.

Shaw virtist heppinn að sleppa þar sem hann rétti höndina út, en Oliver og VAR ákváðu að dæma ekkert á þetta.


Athugasemdir
banner
banner