Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 10. janúar 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Þór/KA tekur þátt í Faxaflóamótinu
Þór/KA spilar í Faxaflóamótinu
Þór/KA spilar í Faxaflóamótinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA mun taka þátt í Faxaflóamóti kvenna þetta árið en það er gert til að fá betri leiki á undirbúningstímabilinu.

Faxaflóamótið er haldið á undirbúningstímabilinu og eins og nafnið gefur til kynna eru það liðin sem eru í Faxaflóanum sem taka þátt í því.

Stjarnan, Haukar, Afturelding og Keflavík taka þátt í mótinu í ár en Þór/KA mun þá bætast við.

Þór/KA kemur inn í mótið en það er gert til að mæta andstæðingum í svipuðum styrkleikaflokki og bæta þannig undirbúning liðsins.

Liðið fer í tvær helgarferðir suður en liðið mætir Stjörnunni á föstudag og Aftureldingu á sunnudag og svo kemur liðið aftur og mætir Haukum 4. febrúar og Keflavík tveimur dögum síðar.
Athugasemdir
banner
banner