Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 10. janúar 2022 11:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Valur rætt við Böðvar - Segir ekkert til í sögum um Eið Smára
Eiður Smári
Eiður Smári
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sagt var frá því í Þungavigtinni á dögunum að Böðvar Böðvarsson hefði fundað með Heimi Guðjónssyni, þjálfara Vals. Böddi vildi ekki staðfesta þetta en það gerði Börkur Edvardsson, formaður Vals, í morgun.

„Það er engin launung að við höfum hitt Böðvar," sagði Börkur. Er það þannig sett upp að ef hann semur ekki erlendis að þá komi hann í Val?

Staðfestir tilboðin í Tryggva Hrafn - „Hann er bara ekki til sölu, mjög einfalt"

„Nei, nei, við spjölluðum bara við hann um heima og geima."

Í desember var Eiður Smári Guðjohnsen sagður hafa fundað með Val. Fréttaritari bar þá sögu undir Börk.

„Nei," sagði Börkur einfaldlega aðspurður hvort Valur hefði fundað með Eiði Smára.

Sjá einnig:
Sagður hafa fundað með Val - „Markmiðið er að vera úti"
Eiður Smári orðaður við Val/a>
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner