sun 10. febrúar 2019 12:07
Arnar Helgi Magnússon
Bamba braut gleraugu stuðningsmanns í fagnaðarlátum
Mynd: Getty Images
Cardiff vann magnaðan sigur á Southampton í ensku úrvalsdeildinni í gær. Sigurmark leiksins kom á þriðju mínútu uppbótartíma.

Það var að verki Kenneth Zohore, eftir sendingu frá Víctor Camarasa. Með sigrinum skaust Cardiff upp í 16. sæti deildarinnar og er nú komið með 25 stig.

Sol Bamba kom Cardiff yfir á 69. mínútu leiksins og við það brutust út mikil fagnaðarlæti. Bamba hljóp í átt að stuðningsmönnum og fagnaði með þeim.

Lætin og troðingurinn urðu kannski aðeins of mikil af því að Noah Bushby, stuðningsmaður Cardiff varð fyrir því óláni að brjóta gleraugun sín þegar Bamba kom hlaupandi að honum.

„Klárlega þess virði að gleraugun mín hafi brotnað þegar ég fagnaði með Bamba í dag," sagði Bushby á Twitter en mynd af atvikinu má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner