Chelsea heimsækir Manchester City í stórleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni í dag. Flautað verður til leiks á Etihad vellinum í Manchester klukkan fjögur.
Chelsea vann fyrri leik liðanna í deildinni á Stamford Bridge en lokatölur urðu 2-0. N'Golo Kante og David Luiz með mörkin þar.
Með sigri eða jafntefli Manchester City endurheimtir liðið toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar en Liverpool stal því í gær.
Leroy Sané byrjar á varmannabekk Manchester City í dag ásamt David Silva. Kevin De Bruyne er á miðsvæðinu með Fernandinho og Ilkay Gundugan og Aguero er fremstur.
Hjá Chelsea er Willian á varamannabekknum en Gonzalo Higuain byrjar sem fremsti maður.
Byrjunarlið Manchester City: Ederson, Walker, Stones, Laporte, Zinchenko, Fernandinho (C), Gundogan, De Bruyne, Sterling, Bernardo, Aguero
Varamenn: Muric, Danilo, Sané, Silva, Mahrez, Otamendi, Jesus
Byrjunarlið Chelsea: Arrizabalaga; Azpilicueta, Rüdiger, David Luiz, Alonso; Kanté, Jorginho, Barkley; Pedro, Higuaín, Hazard.
Varamenn:Caballero, Loftus-Cheek, Kovacic, Giroud, Willian, Christensen, Emerson
Athugasemdir