Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 10. febrúar 2019 11:19
Arnar Helgi Magnússon
Carragher tók lagið um Van Dijk á skemmtistað
Mynd: Getty Images
Liverpool komst á topp ensku úrvalsdeildarinnar á nýjan leik í gær þegar liðið sigraði Bournemouth, 3-0.

Sadio Mane, Mo Salah og Georginio Wijnaldum skoruðu mörk Liverpool í leiknum.

Jamie Carragher, Liverpool goðsögn og knattspyrnusérfræðingur á Sky, skellti sér út á lífið í gærkvöldi tók lagið uppi á sviði fyrir framan fjölda fólks.

Um var að ræða styrktarkvöld fyrir Sean Cox, stuðningsmann Liverpool sem að varð fyrir líkamsárás fyrir leik Roma og Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð.

Carragher söng lagið um Virgil Van Dijk sem að einhverjir stuðningsmenn Liverpool sömdu um leikmanninn.

Carragher söng af mikilli innlifun en það er óumdeilt að hæfileikar hans inni á fótboltavellinum voru betri en þegar hann er með míkrófón í hönd.

Hér að neðan má sjá takta Carragher í gær og lagið um Van Dijk þar fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner