Stjarnan 1 - 3 Keflavík
1-0 Markaskorara vantar ('18)
1-1 Marín Rún Guðmundsdóttir ('58)
1-2 Ísabel Jasmín Almarsdóttir ('70)
1-3 Aníta Lind Daníelsdóttir ('90)
1-0 Markaskorara vantar ('18)
1-1 Marín Rún Guðmundsdóttir ('58)
1-2 Ísabel Jasmín Almarsdóttir ('70)
1-3 Aníta Lind Daníelsdóttir ('90)
Keflavík hefur verið að gera góða hluti á undirbúningstímabilinu og lagði Stjörnuna að velli í Kórnum fyrr í kvöld. Liðin voru að keppast um 2. sæti A-riðils í Faxaflóamótinu.
Stjörnustúlkur komust yfir snemma leiks og leiddu 1-0 í hálfleik en gestirnir frá Keflavík mættu sterkir til leiks eftir leikhlé.
Marín Rún Guðmundsdóttir jafnaði snemma í síðari hálfleik áður en Ísabel Jasmín Almarsdóttir tók forystuna þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka.
Hart var barist á lokakaflanum sem endaði með því að Aníta Lind Daníelsdóttir tryggði Keflvíkingum frækinn sigur.
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir