banner
   sun 10. febrúar 2019 13:32
Arnar Helgi Magnússon
Higuain: Mitt besta tímabil undir stjórn Sarri
Mynd: Getty Images
Chelsea heimsækir Manchester City í stórleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni í dag. Flautað verður til leiks á Etihad vellinum í Manchester klukkan fjögur.

Gonzalo Higuain gekk til liðs við Chelsea í janúar en hann er á láni hjá liðinu út leiktíðina. Higuain vonast eftir því að ná fram sínu besta í búningi Chelsea

„Sarri er sá þjálfari sem að hefur náð hvað mestu út úr mér, ég átti mitt besta tímabil undir hans stjórn." sagði Higuain en leikmaðurinn skoraði 38 mörk undir stjórn Sarri hjá Napoli tímabilið 2015/16.

„Ég vonast eftir því að komast í það form sem að ég var í á þeim tíma. Hann þekkir mig, veit hverjir styrkleikar og veikleikar mínir eru og hann er alltaf til í að leiðbeina."

„Ég er mjög ánægður með það að vera kominn hingað. Þetta er frábært umhverfi og völlurinn er geggjaður. Ég vona að ég geti hjálpað liðinu að ná öllum markmiðunum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner