Englendingurinn Ainsley Maitland-Niles var í byrjunarliði Arsenal sem að vann 1-2 útisigur á Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Arsenal hefur oft spilað betur en í gær og lýstu einhverjir stuðningsmenn Arsenal yfr óánægju með spilamennsku liðsins í leiknum.
Maitland-Niles skilaði ágætri frammistöðu í gær en í einkunnagjöf Sky eftir leikinn fékk hann sjö í einkunn.
Niles birti mynd á Instagram síðu sinni eftir leikinn þar sem að hann fagnaði sigrinum. Eins og gengur og gerist í nútímasamfélagi voru nokkrir stuðningsmenn Arsenal sem létu leikmanninn heyra það í ummælum fyrir neðan myndina.
Niles brá á það ráð að svara nokkrum stuðningsmönnum sem að gagnrýndu sig.
„Þú ert of latur fyrir Arsenal," var til að mynda ein ummælin. Svar Niles hljómaði svo: „Ég skal reyna að bæta mig í því."
„Þú tapar boltanum of oft. Þú verður að passa þig betur þegar þú ferð upp með boltann, þú mátt ekki skilja eftir pláss," voru önnur ummæli. „Fyrirgefðu, ég ætla að skoða þetta betur," svaraði Niles.
Fleiri svör og gagnrýnisraddir má sjá hér að neðan.
Images: Ainsley Maitland-Niles responding to fans about his performance against Huddersfield yesterday on his latest Instagram post. [screenshots via @afcDW] #afc pic.twitter.com/U3IUs9pJrt
— afcstuff (@afcstuff) February 10, 2019
Athugasemdir