Thomas Meunier og Edinson Cavani, leikmenn PSG, munu ekki geta tekið þátt í leiknum gegn Manchester United á þriðjudag.
Meunier var tekinn af velli í 1-0 sigri á Bordeux í gærkvöldi en hann lenti í samstuði við leikmann andstæðinganna þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af leiknum.
Edinson Cavani skoraði sigurmark leiksins úr vítaspyrnu rétt fyrir hálfleik en það var nánast það síðasta sem að Cavani gerð í leiknum vegna þess að hann var tekinn útaf í hálfleik vegna meiðsla.
Cavani fór í rannsókn eftir leikinn í gær en í tilkynnigu frá félaginu segir að hann hafi orðið fyrir meiðslum á mjöðm og næstu dagar muni skera úr um það hversu lengi hann verður frá.
Ljóst er að brasilíski töframaðurinn Neymar mun ekki spila með PSG í leikjunum tveimur gegn United.
Cavani 🤕https://t.co/SZcVmHU80X
— 101 Great Goals (@101greatgoals) February 10, 2019
Athugasemdir