Athletic Bilbao 0 - 0 Barcelona
Barcelona heimsótti Athletic Bilbao í kvöld og gat aukið forystu sína á toppi spænsku deildarinnar eftir tap Atletico Madrid í gær.
Leikurinn spilaðist þó alls ekki eins og Börsungar höfðu ætlað sér og voru heimamenn í Bilbao betri stóran hluta leiksins.
Barca hélt boltanum vel innan liðsins en vörn Athletic opnaðist ekki og voru heimamenn stórhættulegir í sínum eigin sóknaraðgerðum.
Börsungar geta þakkað Marc-Andre ter Stegen fyrir að hafa haldið hreinu og bjargað stigi í kvöld.
Barcelona er með sex stiga forystu á Real Madrid í toppbaráttunni á meðan Athletic Bilbao er í neðri hluta deildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti.
Athugasemdir