KFG og Vængir Júpíters áttust við á laugardag í æfingaleik sem endaði 1-4 fyrir Vængina.
Leikið var á Samsung-vellinum í Garðabæ. Bæði þessi lið eru í undirbúning fyrir Lengjubikarinn og spila svo bæði í 3. deildinni í sumar.
Leikið var á Samsung-vellinum í Garðabæ. Bæði þessi lið eru í undirbúning fyrir Lengjubikarinn og spila svo bæði í 3. deildinni í sumar.
Það voru þeir Panos Pali, Andi Morina, Sigurbjörn Bjarnason og Aron Páll Símonarsson sem skoruðu fyrir Vængina.
Markaskorari KFG var Bjarni Pálmason.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir