Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 10. febrúar 2020 17:30
Magnús Már Einarsson
Forseti Bayern: Ronaldo of gamall fyrir okkur
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Herbert Hainer, forseti Bayern Munchen, segir að Cristiano Ronaldo sé of gamall til að koma til félagsins.

Ronaldo varð 35 ára gamall í síðustu viku en stuðningsmenn spurðu Hainer á fundi á dögunum hvort að möguleiki sé á að fá Ronaldo.

„Margir leikmenn hafa verið orðaðir við okkur í fjölmiðlum. Cristiano er aðeins of gamall fyrir okkur," sagði Hainer.

Leroy Sane, kantmaður Manchester City, hefur áður verið orðaður við Bayern Munchen og Hainer segir hann á óskalistanum.

„Leroy er frábær leikmaður sem við höfum áhuga á. Það er vitað. Sjáum hvernig hann kemur til baka eftir meiðsli," sagði Hainer.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner