Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 10. febrúar 2020 09:56
Magnús Már Einarsson
HK tapar leiknum gegn FH - Tefldi fram ólöglegum manni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK lagði FH 1-0 í fyrsta leik liðanna í Lengjubikarnum á föstudagskvöld. Birnir Snær Ingason skoraði eina mark leiksins.

FH hefur nú verið dæmdur 3-0 sigur í leiknum þar sem HK tefldi fram ólöglegum leikmanni.

Emil Skorri Þ. Brynjólfsson spilaði með HK í leiknum en hann er skráður í Ými.

Auk þess að dæma FH 3-0 sigur þá var HK sektað um 60 þúsund krónur af KSÍ.
Athugasemdir
banner
banner
banner