Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 10. febrúar 2020 11:29
Elvar Geir Magnússon
Maddison djammar í Dubai - Á óskalista Arsenal
Maddison lætur sér ekki leiðast í vetrarfríinu.
Maddison lætur sér ekki leiðast í vetrarfríinu.
Mynd: Twitter
James Maddison, leikmaður Leicester, nýtur sín vel í vetrarfríinu og hefur litað skemmtanalífið í Dubai. Myndir hafa birst af honum í enskum götublöðum þar sem sagt er frá því að hann hafi eytt háum fjárhæðum í áfengi og dansað við unga fyrirsætu.

Á meðan heldur umræðan um framtíð þessa frábæra leikmanns áfram en nú segir Daily Mail frá því að hann sé á óskalista Mikel Arteta hjá Arsenal.

Maddison hefur verið í viðræðum um nýjan samning við Leicester og þær viðræður eru sagðar langt á veg komnar.

Arteta vill hrista upp í leikmannahópi Arsenal í sumar og hefur mikinn áhuga á að fá Maddison. Leikmaðurinn hefur einnig verið orðaður við Manchester United.


Athugasemdir
banner
banner
banner