Fotbolti.net
10.02.24 - 17:39
Ívan Guðjón Baldursson

Championship: Leicester óstöðvandi - Magnaður endurkomusigur í Southampton

Championship: Leicester óstöðvandi - Magnaður endurkomusigur í Southampton
Canon

Mynd: Getty Images

Það fóru tíu leikir fram í ensku Championship deildinni í dag, þar sem Arnór Sigurðsson kom inn undir lokin í 3-1 sigri Blackburn Rovers gegn Stoke City.
Arnór kom inn á 85. mínútu leiksins og er Blackburn með 36 stig í neðri hluta deildarinnar, sjö stigum frá fallsæti og ellefu stigum frá umspilssæti.

Topplið Leicester City heimsótti Watford og vann með mörkum frá Patson Daka og Ricardo Pereira, áður en Emmanuel Dennis kom inn af bekknum og minnkaði muninn fyrir heimamenn.

Leicester er með ellefu stiga forystu á toppi deildarinnar á meðan Watford er sex stigum frá umspilssæti.

Southampton lenti þá tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik á heimavelli gegn Huddersfield en kom til baka í ótrúlegum síðari hálfleik, þar sem Joe Rothwell jafnaði með tvennu á skömmum tíma strax í upphafi.

Huddersfield tók forystuna aftur og hélt henni allt þar til á lokakaflanum, þegar heimamenn í Southampton skoruðu þrjú mörk til að vinna að lokum 5-3.

Southampton er í öðru sæti, einu stigi fyrir ofan Leeds United sem vann þægilegan sigur á Rotherham, þökk sé marki frá Patrick Bamford og tvennu frá Crysencio Summerville.

Ipswich er svo í fjórða sæti eftir jafntefli við West Brom, sem er í umspilsbaráttu ásamt Sunderland og Hull sem áttu leiki í dag. Sunderland vann þar gegn Plymouth til að klifra yfir Hull og upp í umspilssæti.

Blackburn 3 - 1 Stoke City
1-0 Tyrhys Dolan ('7 )
2-0 Sammie Szmodics ('19 )
3-0 Tyrhys Dolan ('37 )
3-1 Niall Ennis ('39 )
3-1 Daniel Johnson ('49 , Misnotað víti)

Cardiff City 0 - 2 Preston NE
0-1 Emil Riis Jakobsen ('31 )
0-2 Ben Whiteman ('40 )

Hull City 0 - 1 Swansea
0-1 Liam Cullen ('11 )

Ipswich Town 2 - 2 West Brom
0-1 Tom Fellows ('18 )
1-1 Nathan Broadhead ('46 )
1-2 John Swift ('76 )
2-2 Omari Hutchinson ('90 )

Leeds 3 - 0 Rotherham
1-0 Patrick Bamford ('10 )
2-0 Crysencio Summerville ('52 )
3-0 Crysencio Summerville ('60 , víti)

Middlesbrough 1 - 2 Bristol City
0-1 Jason Knight ('16 )
0-2 Matty James ('17 )
1-2 Sam Silvera ('90 )

QPR 2 - 2 Norwich
1-0 Jack Colback ('27 )
1-1 Kenny McLean ('48 )
1-2 Josh Sargent ('63 )
2-2 Michael Frey ('77 )

Southampton 5 - 3 Huddersfield
0-1 Sorba Thomas ('36 )
0-2 David Kasumu ('45 )
1-2 Joe Rothwell ('49 )
2-2 Joe Rothwell ('51 )
2-3 Alex Matos ('66 )
2-4 Tom Lees ('81 , sjálfsmark)
3-4 Sekou Mara ('84 )
4-4 Samuel Edozie ('90 )

Sunderland 3 - 1 Plymouth
0-1 Ryan Hardie ('39 )
1-1 Pierre Ekwah ('52 )
2-1 Jack Clarke ('60 )
3-1 Jobe Bellingham ('67 )

Watford 1 - 2 Leicester City
0-1 Patson Daka ('11 , víti)
0-2 Ricardo Pereira ('56 )
1-2 Emmanuel Dennis ('63 )
Championship: Leicester óstöðvandi - Magnaður endurkomusigur í Southampton
Canon

Mynd: EPA

Championship: Leicester óstöðvandi - Magnaður endurkomusigur í Southampton
Canon

Mynd: Getty Images

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Swansea13+726
3Wolves13+724
4West Brom13+524
5Southampton13+1523
6Birmingham13+1023
7Stoke City13+423
8West Ham13+1522
9QPR13+520
10Sheffield Utd13+219
11Portsmouth13+119
12Millwall13+218
13Blackburn13-118
14Bristol City13-218
15Norwich13-115
16Lincoln City13-915
17Cardiff City13-114
18Wrexham13-414
19Bolton13-814
20Charlton Athletic13-1014
21Watford13-1111
22Burnley13-89
23Derby County13-147
24Preston NE13-175
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.