þri 10. apríl 2018 22:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Það stoppar ekkert markaflóð Liverpool - Nýtt markamet
Mynd: Getty Images
Sóknarleikur Liverpool hefur verið stórkostlegur á þessari leiktíð, sérstaklega í Meistaradeildinni.

Liðið bætti markamet í riðlakeppnini og eftir 2-1 sigur á Manchester City í kvöld hefur liðið sett annað markamet. Aldrei hefur lið frá Englandi skorað fleiri mörk á einni leiktíð í Meistaradeild Evrópu en Liverpool á þessari leiktíð.

Frábær árangur hjá Liverpool sem hefur skorað 33 mörk með Salah, Firmino og Mane fremsta í flokki.

Lærisveinar Jurgen Klopp eru komnir í undanúrslit Meistaradeildarinnar eftir að hafa slegið Man City úr leik í kvöld. Stuðningsmenn Liverpool leyfa sér að dreyma um að komast enn lengra og það verður spennandi að sjá hvað gerist.

Það er að minnsta kosti ljóst að liðið getur skorað mörk!



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner