Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. apríl 2019 22:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Færeyjar: Lið Heiðars Birnis sló út lið úr efstu deild
Mynd: Aðsend
B71 sem leikur undir stjórn Heiðars Birnis Þorleifssonar er komið áfram í 8-liða úrslit færeysku bikarkeppninnar. Brynjar Óli Bjarnason er einn af leikmönnum liðsins.

B71 lagði ÍF frá Fuglafirði í 16-liða úrslitunum í kvöld. Mark hins fertuga Brasilíumanns Clayton Soares skildi liðin að.

Heiðar tók við B71, sem rétt slapp við fall úr B-deild, í desember siðastliðnum. Félagið á áhugaverða sögu að baki og hefur bæði unnið efstu deild og bikar á síðustu 30 árum.

Heiðar, sem er fertugur, hefur starfað hjá Val, Dalvík/Reyni, Þrótti og KR hér á landi.

Fyrr í dag sögðum við frá því að Heimir Guðjónsson hafði betur í baráttunni gegn Guðjóni Þórðarsyni. Þeir mættust með lið sín, HB og NSÍ, og hafði HB betur.
Athugasemdir
banner
banner
banner