Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 10. apríl 2020 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ighalo rólegur: Það er ekkert tilboð á borðinu
Odion Ighalo er í láni hjá Manchester United.
Odion Ighalo er í láni hjá Manchester United.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Odion Ighalo segist ekki vera með tilboð frá Manchester United um að vera lengur hjá félaginu en núverandi lánssamningur hans segir til um.

Ighalo kom til United á láni frá Shanghai Shenhua í Kína á gluggadeginum í janúarglugganum.

Hann stóð sig mjög vel áður en hlé var gert á fótbolta í Englandi og víðar vegna kórónuveirufaraldursins. Ighalo, sem er þrítugur, er búinn að skora fjögur mörk í átta keppnisleikjum fyrir United.

Hann er mikill stuðningsmaður United og það er spurning hvort hann verði lengur hjá félaginu en út þetta tímabil.

„Það er ekkert tilboð á borðinu," sagði Ighalo við Elegbete TV. „Tímabilið er enn í gangi og ég á enn samning. Ég bið guð alltaf að leiðbeina mér."

Ighalo segist ætla að skoða hvað gerist að tímabilinu loknu.
Athugasemdir
banner