Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 10. apríl 2021 12:47
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið Íslands gegn Ítalíu - Leikurinn í beinni á YouTube
Icelandair
Þorsteinn hefur valið sitt fyrsta byrjunarlið.
Þorsteinn hefur valið sitt fyrsta byrjunarlið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Cecilía Rán er í markinu.
Cecilía Rán er í markinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Halldórsson, nýr landsliðsþjálfari kvenna, hefur tilkynnt sitt fyrsta byrjunarlið sem mætir Ítalíu í vináttulandsleik ytra klukkan 14:00 í dag.

Liðið má sjá hér að neðan en fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir er ekki með vegna meiðsla á hásin og Dagný Brynjarsdóttir komst ekki með í verkefnið þar sem hún er í sóttkví á Englandi..

Leikurinn er í beinni útsendingu á YouTube síðu KSÍ.

Markvörður:
Cecilía Rán Rúnarsdóttir

Varnarmenn:
Elísa Viðarsdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Guðrún Arnardóttir
Álaug Munda Gunnlaugsdóttir

Miðjumenn:
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Alexandra Jóhannsdóttir
Karolína Lea Vilhjálmsdóttir

Framherjar:
Hlín Eiríksdóttir
Elín Metta Jensen
Agla María Albertsdóttir


Athugasemdir
banner
banner